Það var og :)

14.06.2010 12:29:51 / Charmed

Sumarátak

Jæja þar sem veturinn var mér ekki góður hvorki heilsulega séð né þyngdarlega hef ég ákveðið að fara í átak.
Ekki hægt að leyfa sér að vera svona þung eins og ég var orðin fín. Ég er samt ekki með nein tímamörk á markmiðum mínum ætla bara að leyfa þessu að gerast á sínum hraða.
En átakið er hafið, eftir þessa veikindatörn hef ég reyndar takmarkað þol svo ég þarf að byrja á því að byggja það upp aftur.
Ekki leiðilegt, hentar vel þráhyggju minni að vinna að auknu þoli :D

Ég efast um að ég nenni að skrifa daglega um eitthvað svona lítið skemmtilegt að lesa eins og átak en ætla að henda inn hvernig mér gengur við og við hérna, hver veit nema mér takist að ná þessum veikinda/lyfja kílóum burtu já og ef ekki nú þá verð ég alla vega komin með betra þol sem er ekkert nema gott þegar kemur að því að takast á við aðra veikindatörn komi hún :D
Annars er allt gott að frétta af okkur stelpurar byrjuðu á sundnámskeiði í morgun þeim til mikilar gleði :)
Anna er búin að missa tvær tennur og segir öllum sem nenna að hlusta á það stolt ;)



» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2010 20:07:36 / Charmed

Sumarið er tíminn :)

Sumarið er komið :)
Alveg satt :D

Dimmur og böggandi vetur loksins búin. Eins gott að næsti vetur (langt,langt,langt í hann) verði ekki eins og sá síðasti.
Eina góða sem kom úr vetrinum er það að ég hætti að reykja :D
Lærði að gjafir míns æðri máttar eru ekki alltaf góðar og skemmtilegar en engu að síður gjafir sem ég lærði að meta.
Framundan er svo endurhæfing eftir veikindi vetrarins, verð að segja að ég hlakka til að mæta á Reykjalund alla morgna og taka á líkamlega, byggja upp þrek :)
Ég er allavega að mestu búin að jafna mig eftir lungabólguna, lungun samt ekki enn farin að hreinsa sig sjálf nógu vel en þetta kemur allt.

Ég er búin að vera í sporavinnu undan farna mánuði, alltaf gott að taka þau aftur þegar eitthvað bjátar á til að byggja upp andlegan styrk til að takast á við mótlæti.

Stelpurnar stækka og stækka. Styttist í gelgjuna, þær eru allaveg farnar að rífa nóg kjaft ;) og nógu mikið geta þær rifist um ekki neitt hahaha.
Það er samt ekki hægt annað en að elska þessar snúllur sama hvað þær arga og garga og rífast.

Anna Lára er að fara að byrja í skóla í haust. Hún er á fullu að undirbúa sig, æfir sig að skrifa stafina á hverjum degi og 2x í viku æfum við lesturinn. Henni hlakkar til á meðan mig kvíður fyrir að senda hana úr örygga umhverfi leikskólans út í alvöru lífsins í grunnskólanum. Hún hætti að æfa fimleika og snéri sér að sundinu, þar er hún rosalega ánægð. Systur hennar fylgja henni svo í vetur svo það verður nóg að gera hjá mér þrjá daga vikunar að fylgja þeim á æfingar og horfa á :D
Anna er orðin virkilega klár í sundinu, skilst að hún sé búin með fyrstu tvö árin í grunnskóla :)

Annars er allt við það sama hjá okkur. :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2010 00:25:02 / Charmed

Er hætt að nenna

Ég er hætt að nenna að skrifa hérna á blogginu, vantar samt ekki að það sé ekki frá nægu að segja.
Á bara erfit með að gefa mér tíma til þess að kasta orðum hingað inn.
Ákvað samt að láta vita að ég er ekki búin að gleyma þessari síðu, það kemur bráðum eitthvað af viti hingað inn ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2009 19:44:04 / Charmed

Bókasjúk

Ég er bókasjúk það sjúk að ef ég á smá pening afgangs kaupi ég mér frekar bók en flík ;) Ég á fleiri bækur en ég kem fyrir hérna heima því ekki tími ég að kaupa mér stóran bókaskáp :haha:

Nú er ég haldin þeim galla að ég man ekki nöfn, hvort sem það séu bókatitlar,kvikmyndatitlar, nöfn á hljómsveitum, leikurum,söngvörum eða heimilsföng. Því lendi ég oft í því að kaupa mér bók sem mig langar mikið til að lesa. Er kannski búin að standa við bókarekkann og lesa aftan á óteljandi bækur, svo heillar ein mig og ég rýk til og kaupi.

Um kvöldið hef ég mikið fyrir því að koma krakkaskaranum niður, slekk á tölvunni og kem mér vel fyrir, spennt yfir því að sökva mér niður í heim bókmennta, gleyma stað og stund og láta ímyndunaraflið ráða för. Svo hefst lesturinn og á á miðri blaðsíðu 1 átta ég mig á því að ég hef lesið þessa bók áður, að þessi bók er til í kassa inni í geymslu eða jafnvel blasir við mér í litlu bókahillunni minni sem ég hef hérna inni.
NÚ!     Þar sem ég er bókasjúk breytir það svo sem ekki miklu því ég elska að lesa og get lesið sömu bókina aftur og aftur, verst finnst  mér þó að ég hef eytt peningum í sömu bókina tvisvar jafnvel þrisvar 8|


Ég hef svo sem reynt að nýta mér bókasöfnin, og jú lendi í því ítrekað að fá að láni sömu bókina aftur og aftur. Mikið væri gott að geta munað hvað þær bækur heita sem ég hef lesið,keypt eða fengið lánað en það væri kannski til of mikils ætlast þar sem ég hef ekki tölu á þeim fjölda sem ég hef lesið frá því ég varð læs ;)



» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2009 06:04:06 / Charmed

He's just not that into you

I just gotta say I Love that movie :)
Ef þú þarft e-n tímann að brosa, hlæja og vera vandræðaleg á sama tíma skaltu skella þessari mynd í tækið.

Hér er lítið að frétta þriðji ormurinn er öll að hressast, og þá eru þær allar búnar með svínið. Komið gott ekki satt hef ekki áhuga á að leggjast sjálf. Stelpurnar blómstra sem og ég. Ég er en að melta dæmigerðu einhverfu greininguna á músinni minni, jahh líklega enn að reyna að sannfæra sjálfa mig að þetta sé bull og þvæla. Hún er jú róleg, rólegri en systur sínar en samt...æj.. bara smá þankagangur.. hugsa að árin vinni með henni :) hún er algert yndi.
Stóra stelpan mín er algert met, horfði á mig um daginn með svona mömmu þreytu lúk og sagði svo "þú heimska mamma" mér var ekki skemmt þar til hún jú blaðraði því loksins af sér að þetta kæmi úr myndinni Lotta fer að heiman eða álíka.. hahaha
En satt skal vera satt, henni fannst ég heimsk akkurat þarna..  guð hvað þau fara snemma á breytingaaldurinn ;)

Af sjálfri mér, ég er alltaf eins elskurnar, bjartsýn, bjartsýn og ef mér finnst ég þurfa að bæta á hana fer ég bara í smá pollýönnu leik. Nenni ekki þessari svartsýni. Ég er á lífi og á stelpurnar mínar það er nóg.

Ekki misskilja mig ég er sko með LANNNNNNNNNNNNNGAN lista yfir hvað ég vil og þarf og vantar og verð að fá.. alveg sko já sko böns sem ég bara verð að fá ;)
Byrjum á perketi.. veit ekki hvaða heilvita maður fann upp á því að setja linolín dúka á íbúðir, annan eins horbjóð hef ég sjaldan kynnst, forljót helvíti og ef maður á ekki bónvél til að bóna daglega er þetta bull alltaf sól með skýað á köflum..kommon og tölum nú ekki um litaúrvalið. Er viss um að þeim sem datt í hug að linolín dukar hentuðu íbúðum var mein illa við kósý lúk og heitfengur við kalt sterlíst spítala lúk. Damn þessi dúkur pirrar mig :lol:

Já, jú ástæða þess að ég er að blogga klukkan 6 að morgni.. andvaka, ekki vön því að dýrin sofi heila nótt, svo þegar það gerist sofna ég ekki fruss alltaf að bíða eftir að einhver fari að væla ;)

Get svo sem alveg bullað út í eitt hérna núna, farið í heitar parket umræður, ónýta eldhúsbekki og svona en híhí best að stoppa um það.
Er bara að reyna að bridda upp á umræðu efni svona fyrst ég hef ekkert merkilegt að segja... Lifið sama lífi og allir aðrir, þetta er eins dag frá degi og fátt sem fer út af vananum :D
En hver veit einn daginn hef ég kjaftasögur að segja :D



» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2009 22:15:13 / Charmed

Svínaflensan

Það var og að hún kæmi hingað. Við erum svo klárar á þessum bæ að næla okkur í allt ;)
En að öllu gríni slepptu þá er Anna mín orðin veik, veiktist í gærkveldi og var orðin mikið veik í nótt. Ég fékk lækni heim og hún fékk strax Tamiflu samheitarlyfið og mér sagt að þar sem hún fær það á fyrsta sólahring veikinda mætti ég reikna með að veikindin hennar tæku styttir tíma en ef hún hefði ekki fengið lyfið.
Vona bara að fiðrildið mitt jafni sig fljótt, já og að músin og álfurinn sleppi.
Sjálf hef ég ekki veikst, held í vonina að gamla ónæmiskerfið mitt sem engar pestar eða flensur virtust bíta á áður en ég fékk lupusinn taki aðeins í taumana núna og ég sleppi bara við þessa óþægilegu heimsókn frá óvinsæla svíninu.

Annars erum við eitur hressar á þessum bæ, jah svona eins og hægt er að vera. Ég er EINS og alltaf á þessum tíma farin að telja niður í jólin. Búin að vera að sanka að mér jólagjöfunum svo það er ekki mikið sem ég á eftir að kaupa. Get bara ekki beðið eftir að jólin komi. Elska jólin :)
Skrifa þetta og söngla um leið í hausnum "skreytum hús með greininum grænum"
Ohh vá hvað það væri gott ef það væri hvítt úti núna og ég með kertaljós og smákökur........DRAUMUR.
mmmmmmmmmmmmmmmmmm
Æj það er ekki annað hægt en að elska þetta líf :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2009 20:39:06 / Charmed

Komið að bloggi

Úff langt síðan ég hef bloggað, meira en mánuður.
Tvíburarnir búnar að eiga afmæli og ég líka. Afmælisveislan gekk æðislega og synga þær enþá ég á afmæli í dag :)
Námið er hafið, ákvað að taka bara eitt fag þessa önn, búin að vera of veik undanfarin misseri til að treysta mér í að taka meira, er ekkert pirruð yfir þessu námið tekur þá bara lengri tíma en ég áætlaði. Stefnan er enþá að ná mér í menntun svo ég geti þó væri ekki nema unnið heima frá mér og framfleit mér sjálf á einhvern hátt :)
Hef annars lítið að segja, jú það er búið að finna stuðningsfjölskyldu fyrir tvíburana en enn er verið að leita fyrir stóru dömuna mína :)
Verður gott fyrir þær að fá að kynnast norminu (mamma og pabbi), verður spennandi að sjá hvernig það mun ganga :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2009 00:43:23 / Charmed

6 ágúst :)

Afmælisdagur litla fiðrildis míns er runninn upp, stóra daman mín bara orðin 5 ára. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, bara ár í það að hún fari í skóla :haha:
Hún er bara yndisleg, sí spyrjandi, vil fá að vita allt og allt á að vera útskýrt. Hún veltir tölum fyrir sér fram og til baka.
Eins mikið og ég hlakka til þess á kvöldin að hún sofni, sakna ég hennar jafn mikið um leið og hún er sofnuð lol
Hreint og beint elska þessa telpu, brosið hennar, hláturinn, yfirlýsingarnar og og talandi um þær.... ;)

Hvaðan skildi setning eins og þessi koma "mamma ég þoli ekki sóðaskap, ég vil hafa hreint" hahahah
Hún er bara æði, með sama svara húmorinn og mamma sín.

Ég er búin að baka fyrir hana afmælisköku og skreyta, svo verður hún vakin í fyrramálið með afmælisköku (því miður ekkert kerti, gleymdi að kaupa það), söng og pökkum. Ekki slæmt að vakna þannig held ég :)
Ég reyndar keypti ekki eina hlutinn sem var á óskalistanum hjá henni í ár, en sá til þess að hún fengi það samt í afmælisgjöf svo hún verður ekki fyrir vonbrigðum.... hnátunni langaði sem sagt í veiðistöng :)
Mamma hennar var samt aðeins stórtækari og keypti svolítið annað, leikfang sem ýtir undir tölu áhuga hennar :D

Alla vega varð bara að monta mig smá af afmælisbarninu.


Mikið að gera í ágúst, 1 ágúst hófst á því að ég fór í brúðkaup kærs stóra bróður míns og yndislegri magkonu minni. Athöfnin var gullfalleg sem og brúðhjónin :) Veislan var virkilega góð og litlu skrímslin mín hegðuðu sér alveg eins og stillt börn eiga að gera. Já þær geta þetta, geta verið stilltar þessar elskur :)

Svo er ættarmót framundan, leikskólaafmælisveisla fyrir Önnu Láru, vina og ættingja afmælisveisla fyrir allar þrjár skotturnar saman og já svo það merkilega.
30 ágúst hefi yndislega langamma mín orðið 100 ára hefði hún lifað í því tilefni erum við ættingjar hennar að spá í að hittast og fagna aldarafmæli ættmóður okkar :)

Já svo má ekki gleyma öllum öðrum ættingjum ættarinnar sem eiga afmæli í ágúst, var sko ekki að grínast þegar ég sagði að það er MIKIÐ að gera í ágúst :D

en K
Chao


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2009 13:02:41 / Charmed

Sumar og aftur sumar

Það sem af er sumars er búið að vera yndislegt. Stelpurnar fóru í sumarfrí frá leikskólanum 13 júlí og verða í fríi fram til 10 ágúst. Ætlunin var að vera stöðugt að gera eitthvað þeim til gamans allt fríið, en fór ekki betur en svo að þær byrjuðu fríið á veikindum sem eru loksins búin :)

Það er samt búið að vera rosalega gaman hjá okkur og við bardúsað margt hérna heima sem og eftir að þær urðu frískar út um allt :)

Litlu stelpurnar mínar hættar með snuð og nú er næst á dagskrá að fjarlægja koppana og venja þær við það að nota postulínið ;)

Við höfum ekki farið í ferðalög, enda buddan ferkar tóm, en ætlum að gera betur í ágúst og allavega fara á þetta ættarmót fyrir norðan svo verður bara hitt að ráðast.

Hey vá, gleymi næstum :D 11 júlí átti ég 10 ára edrúafmæli 8) og ekki nóg með það, þennan sama dag gifti kær vinkona mín sig. Brúðkaupið var virkilega fallegt, með þeim fallegri sem ég hef farið í :) Ég hélt því upp á 10 árin í brúðkaupsveislu og svo með því að kíkja smá út á lífið með gömlum og góðum vinum. Fékk svo bestu afmælisgjöfina sem hægt er að hugsa sér, já mína fyrstu barnlausu nótt, aldrei áður verið án tvíburana yfir nótt :)
Þetta var sko bara æði og væri vel til í að upplifa þetta oftar :D

Annars hef ég lítið að segja, það er svo sem allt við það sama, gerist lítið öðruvísi í lífi mans þegar maður er með fullt hús af börnum. Maður verður jafnvel svo leiðinleg á köflum að það er ekki talandi við mig því ég hef bara stelpurnar að tala um og hvað þær eru að gera, eins og það sé það sem fólk nennir að tala um þegar það er að flýja hús og börn í smá stund ;)
LOL sko samt ekki alltaf svona hef alveg stundum frá öðru að segja en hvernig gengur með gríslingana :)




» 2 hafa sagt sína skoðun

08.06.2009 11:27:46 / Charmed

Yndisleg helgi :)

     Vá hvað ég er búin að eiga yndislega helgi með dætrum mínum.                                                                     
Á föstudaginn byrjuðum við um leið og þær komu heim úr leikskólanum að vera með kósý kvöld, vöktum langt frameftir og horfðum á skemmtilegar myndir.         Laugadagurinn var svo tekin snemma, stelpurnar tóku hann reyndar fyrr en ég og bardúsuðu sér við að baka úr kryddskápnum áður en húsfrúin dröslaðist á fætur, við byrjuðum því daginn saman á því að þrífa hátt og lágt og sturta okkur, skelltum okkur svo á Ikea daginn, stelpurnar fengu pylsur og ís og fóru í myndatöku, skelltu sér svo í ævintýraland svo mamman fengi að spóka sig um í þessari höll og láta sig dreyma um allt það sem henni langar að kaupa, svo er bara að fara að hanga í GH vöruhúsinu og vonast eftir að einhver hafi losað sig við allt það sem mig langar í :)       

Sunnudagurinn var ekkert síðri en laugadagurinn, við tókum daginn aftur snemma, dunduðum okkur hérna heima fram yfir hádegi, hringdum þá í Þórey frænku og nörruðum hana í sund með okkur, þar skemmtu allir sér konunglega, músin mín var sko engin mús í sundinu, hún var kjarkaðir en álfurinn sem hékk allan tímann í mömmu sinni og kjarkaðir en fiðrildið sem þó vogaði sér nokkra metra frá mömmunni. Nei sko músin hélt því fram að hún væri stór, svo stór að hún gæti sko vel farið í stóru stóru rennibrautina, varð svo sármóðguð þegar mamman bauð henni að skella sér í pínkulitla leiðinlega rennibraut, já músin mín blómstraði í lauginni hef bara aldreið séð hana eins og hún var þarna :)                                                                     
Svo var haldið heim og haldin vöffluveisla, Þórey frænka var svo yndisleg að eyða restinni af deiginum með okkur, við hengum í garðinum þó það væri skýjað og ringdi inn á milli, máluðum nokkra stafi í viðbót á veggina hjá fiðrildinu og nutum þess að spjalla allar saman um allt og ekkert. Snúllurnar voru orðnar svo yfirkeyrðar eftir helgina að þær náðu sér svo ekki niður fyrr en um miðnætti en það var í lagi því við áttum bara yndislega kvöldstund saman líka.                                         
Verst að helgin endaði á því að álfurinn húrraði niður úr hjónarúminu og uppskar fjólubláa risastóra kúlu á ennið fyrir vikið.                                                        

Nú er svo komin mánudagur, dömurnar farnar í leikskólann og ég sit hérna og mana mig í að ráðast á herbergi elsta erfingjans, það er jú stórt verk þar sem krílin mín voru að baka í eldhúsi fiðrildisins ;) Svo er fiðrildið að fara að fá nýtt "notað" rúm svo ég verð að skella mér í það að taka niður litla rúmið sem fyrst.          
Já ég gleymi :haha: Undanfarna viku höfum við verið með auka heimilismeðlim, hann Refur Snær er í pössun hjá okkur Míu Ref til mikillar gleði, þau sofa saman, slást, kúra, berjast um matinn og kattakassann, eru já hreint út sagt bara alveg eins og systkini :p                  

En JÆJA best að haska sér í tiltektina áður en líkaminn segir stopp, var nefnilega svo dugleg að fara í sund í morgun og verð því að vera snögg áður en líkaminn segir nei nú hvílir þú þig hahahah, ömurlegt að hljóma eins og níræð kerling en svona er víst að vera með sjálfsofnæmissjúkdóm og fjölgigt ;)      
                                                                                                                                                     

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2009 22:44:38 / Charmed

Hinsta Kveðjan

Árni Ragnar Árnason                                                                 
Fæddur 7 sept 1972
Látinn 21 maí 2009




Í dag var Árni gamall vinur minn borin til grafar. Árna var kippt úr lífinu allt of snemma, á svona stundum get ég ekki annað en hugsað út í það að lífið er oft á tíðum óréttlátt. Að vera í blóma lífsins eina stundina og þá næstu ekkert, horfin.                
                                                                                  

Árni var þannig að öllum líkaði vel við hann, sama hvar hann kom, alltaf kom hann með sólskínið með sér. Það voru ófá kvöldin sem við sátum saman hérna á árum áður og töluðum um allt og ekki neitt, Árni hafði einstakt lag á því að láta öllum líða vel, og það breyti engu hversu mörg ár liðu á milli þess sem ég hitti hann alltaf var eins og við höfðum kvaðst síðast í gær.                           
                                        
Ég kynntist Árna árið 95 þegar hann var í sambandi með vinkonu minni, ég fann strax og ég hitti hann  að þarna var á fer maður gæddur mörgum góðum kostum og hæfileikum, vegir hans og vinkonu minnar skildu um tíma en leið þeirra átti eftir að liggja saman aftur mörgum árum seinna, við Árni höfðum samt alltaf spjallað og haft gaman af þegar við hittumst þess á milli, en þarna endurnýjuðum við vinskap okkar en og aftur. Leiðir þeirra lágu í sundur aftur og samskipti mín við Árna minnkuðu, en alltaf gat hann spjallað þegar ég rakst á hann á förnum vegi. Ekki er langt síðan við Árni fórum að spjalla saman aftur og þá var gott að leita til hans með þau málefni sem á mér hvíldu þá, hann sannaði þar að hann er alltaf vinur vina sinna sama hversu langt leið á milli þess sem við töluðumst við.                                                                                    
               
Mikil er missir Elmars sonar Árna, en hann fer þó með út í lífið að veganesti hvernig góður faðir á að vera og mun flytja það áfram í sín börn, þau börn sem hann mun eignast munu ekki kynnst afa sínum en þau munu græða á því hversu góður faðir Árni var Elmari því eitt er víst að maður gæddur gæsku Árna ber áfram í komandi kynslóðir gæsku sína.  Sárt er að hugsa til þess að litla ófædda dóttir Árna fær ekki að kynnast honum og kostum hans, hún mun aðeins þekkja hann af sögum og lýsingum. Mikil er missir þessara litlu ófæddu stúlku sem kemur aldrei til með að kynnast pabba sínum, óréttlætið er mikið, að ófætt barn skuli ekki fá að eyða tíma með föður sínum, að ungur drengur sem er en að feta sig í þroskabrautinni í átt til fullorðins árana skuli fara á miss við leiðsögn og ást föður síns.
                                                                                                                            

Elsku Árni, ég veit að þú hefðir verið stoltur af félögum þínum í dag þegar við sem þekktum þig og þóttum vænt um þig komum og kvöddum þig, þeir stóðu sig með sóma. Missir þeirra er mikil eins og ættingjana, en þeir eiga þó góðu minningarnar um þig, minningar sem gott verður að ylja sér á þegar manni langar að taka upp símann og bjalla á þig.
                                                                                                

Hvíldu í friði Árni Ragnar, ég veit að þó okkur muni finnst óralangt þar til við hittum þig aftur að þá tekur þú vel á móti okkur þegar að því kemur.

Gugga




» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2009 20:03:30 / Charmed

Munar ekki um það :haha:

Komið sumar og ég bloggaði síðast um Páskana. Ég er komin í sumarfrí frá fjarnáminu, gekk bara þokkalega í lokaprófunum, náði með stæl :)
Það er komin sumarfýlingur í mig, og ég farin að plana hvað er hægt að gera og fara ;)
Í gær skellti ég mér á Reunion hjá krökkunum sem ég var með í Fellaskóla, það var bara æði að hitta þau, fór líka síðast þegar það var fyrir 5 árum og í þetta sinn var það ekkert síðra.
Ég fór reyndar líka með stelpunum í sveitaferð í gærdag, fórum Borgarnesið og kíktum á tvo sveitabæi, uppgvötaði mér til ama þegar ég var komin á fyrri sveitabæinn að ég gleymdi myndavélinni :(
Annars er voðalítið að frétta, við erum bara alltaf við sama heygarðshornið við mæðgurnar. Fengum okkur kött fyrir stuttu sem fékk nafnið Mía Refur, hún er alger fegurðardís eins og aðrir heimilismeðlimir :D Læt staðar numið núna enda hef ég ekkert að segja.
Chao



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2009 23:22:31 / Charmed

Páskar

Vá bara komnir páskar aftur. Svakalega líður tíminn hratt, finnst það hafa verið í gær, þegar ég var að gefa dömunum mínum páskaegg og mynda þær bak og fyrir á meðan, en NEI ;) það var víst fyrir ári síðan.
Hér gengur allt sinn vanagang, komin í páskafrí í náminu, það stoppar mig samt ekki af að kíkja á fjarnámssíðuna daglega, til hvers veit ég ekki, það er ekkert að gerast á síðunni núna :D
Ég er farin að velta sumarinu fyrir mér, langar að gera svo margt með dömunum mínum, en veit ekki hvað ég á að velja. Langar í útilegu með þeim... LOL já ég veit... haha fara með 3 snarvitlaus kríli í tjaldferðalag, ekki alveg að gera sig. En mig langar líka í sumarbústað ;)
Annars skilst mér að það eigi að vera ættarmót í sumar, hef samt ekkert heyrt um það enþá, en það átti allavega aðð vera á 3 ára fresti... HMMM spurning, en þá er komið eitthvað eitt enn sem ég get gert með skvísunum :) Það er allavega næsta plan, skipuleggja sumarið og hvað er hægt að gera til að njóta þess með yndunum mínum :D
En ætla að stoppa hérna, bara kasta smá páska kveðju á liðið
Chao :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 19:31:58 / Charmed

allt við það sama eins og alltaf :D

Hér er lítið að frétta að vanda.  Stelpurnar yndislegar eins og alltaf, fengu inflúensuna um daginn og voru allar þrjár heima í viku, ég verð að segja að það reyndi á þolinmæði okkar allra ;)
Þær voru samt fegnari en ég þegar þær gátu farið aftur í leikskólann :haha:
Eitt er ég búin að sjá.. skrópsýki í grunnskóla kemur vel niður á manni í framhaldsskóla, meina hmmmmm ég hef bara voða litla hugmynd um hvað eru atviksorð-smá grun um hvað eru samtengingarorð og FORSETNING halló hvað er það...LOL

Ég ætti að skammast mín fyrir að kunna þetta ekki og geri það :s
alveg búin að ákveða það að sumarið fer í það að læra þetta upp á nýtt svo ég geti með sanni sagt að ég kunni mitt eigið móðurmál. Er núna að læra málsögu í íslensku og enska málfræði.... hefði aldrei trúað því hversu áhugaverð íslensk málsaga er, gleymi mér algerlega á meðan ég er að lesa bókina og glósa upp úr henni.
Ég er að gera smá rótækar breytingar á matarræðinu hjá mér, hef verið of gjörn að borða sjaldan og óreglulega, ákvað því að prófa að borða á 2 tíma fresti 6 máltíðir á dag og vá þvílíkur munur á líðan, er hressari og í meira jafnvægi andlega, skapsveiflurnar eru horfnar- segir mér að blóðsykurinn er hættur að rokka, hef reyndar ekki mælt hann þar sem langtíma sykurinn er góður þó skammtíma sé á rokki upp og niður.
Þessi breyting hefur t.d. haft það í för með sér að ég hef enga nartlöngun og sykurlöngunin er alveg horfin... JÁ SÚKKULAÐIÐ er hætt að KALLA á mig þegar ég labba inn í verslun :lol: og nei ég þefa það ekki uppi lengur með rötgen augum. Svona á lífið að vera :haha: Einkunnirnar eru heldur ekki til að kvarta undan fer ekki undir 8,5 og flestar hljóða upp á 9 og 10.. já já veit MONT en trúið mér þegar maður fékk endalaust undir 5 í grunnskóla og vitnisburð getur gert betur- ERGÓ-LÖT- þá er yndislegt að fá að upplifa það að geta hlutina og fá gott fyrir þá.
Enda er mig farið að dreyma um að eftir, reyndar fjölda ára, geti ég tekið BA í ensku og íslensku, tek auðvita ekki mörg fög í einu út af heilsunni en hvert veit kannski ég komist að vinna einn daginn... hmm var ég kannski  búin að blogga um það áður hvað mig dreymir um að vera nýtur þjóðfélagsþegn og geta unnið ;) þó ekki nema heiman frá mér við jafnvel þýðingar :) örugglega er alltaf að láta mig dreyma, þoli ekki að gera ekki neitt... þó sjúkdómur minn sé í raun full vinna en urr ætlaði sko ekki að tala um það leiðinda væl :)
En eins og ég sagði, allt við það sama, lífið yndislegt eins og alltaf hjá okkur fjölskyldunni og NEI er ekki að deita neinn :haha:



» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 21:19:44 / Charmed

sjæsin

haha ég er farin að fá skammir allstaðar að með þetta blogg ;) Bara verið mikið að gera í lærdómnum og lítin tíma haft til að blogga. Voða lítið að gerast hjá mér þessa dagana, álfurinn er byrjuð aftur í sjúkraþjálfun og gengur vel.
Fiðrildið mitt er svo að fara að byrja í sjúkraþjálfun til að koma í veg fyrir að eitthvað (man ekki hvað) styttist í kálfunum á henni, hún er alltaf í táganginum.
Ég er nú þegar búin að fá nokkrar einkunnir og þær eru allar mjög góðar 8 og yfir, námið tekur samt þokkalegan tíma frá mér :D
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, reyni að henda inn meira á bloggið við tækifæri og þegar frá einhverju merkilegu er að segja
Chao :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Heimsóknir
Í dag:  35  Alls: 150312
Facebook